Flott í Eyjum

Það var meiriháttar gaman um helgina og fyrir utan ólánið með Grétu þá hefði þetta ekki getað verið betra. Veðrið eins og það getur verið best í útilegu og aðstaðan eins alveg frábær. Auðvitað söknuðum við þeirra Bóbós og Ásthildar, en þau verða með næst. Ása og Palli eiga heiður skilið fyrir höfðinglegar móttökur og allt sem þau gerðu fyrir okkur það var allt til alls og ef einhvern vantaði eitthvað þá var því bara reddað í hvelli og ekkert mál með það. Það lögðust líka allir á eitt með að gera þetta skemmtilegt og án þess að ætla að halla á neinn þá kom Björn Magnús mér skemmtilega á óvart með spili og söng við varðeldinn.

Ég vil enn og aftur þakka Ásu og Páli alveg sérlega vel fyrir þeirra þátt í þessu og vona að allir hafi komist óskaddaðir til síns heima.

Kveðja Björn H.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband